Á síðasta aðalfundi PFÍ var samþykkt að halda auka aðalfund og fela laganefnd félagsins að fara yfir lög og reglur, sérstaklega er varða trúnaðarmenn félagsins.
Niðurstöður þeirrar vinnu verða nú lagðar fram til umræðu og afgreiðslu á auka aðalfundi, sem haldinn verður fimmtudaginn 14. nóvember kl. 17:15.
Ástæðan fyrir þessum auka aðalfundi er að þegar aðalfundurinn fór fram var félagið í miðjum kjaraviðræðum og því ekki unnt að ganga frá öllum breytingum á þeim tíma.