Stólaskipti í stjórn á aðalfundi eftirlaunadeildar

Á aðalfundi eftirlaunadeildar, sem haldinn var í dag, áttu sér stað stólaskipti í stjórn deildarinnar. Elínbjörg gaf kost á sér sem formaður og tók við formennskunni af Jóni Inga, sem ekki gaf kost á sér áfram í stöðu formanns.

Fanney, Edda, Jón Ingi, Elínbjörg og Valdís

Stjórn eftirlaunadeildar PFÍ tímabilið 2025 – 2027 skipa:

Elínbjörg Kristjánsdóttir, formaður
Edda Egilsdóttir
Fanney Helgadóttir
Jón Ingi Cæsarsson
Valdís Vilhjálmsdóttir

Við þökkum Jóni Inga fyrir hans framlag síðustu tvö árin um leið og við óskum Elínbjörgu til hamingju með formannskjörið.