Í vikunni buðu heildarsamtök launafólks starfsfólki stéttarfélaga á fræðslu með Þorbjörgu Þorvaldsdóttur, samskipta- og kynningarstjóra hjá Samtökunum 78. Þar var fjallað um hatursorðræðu – birtingarmyndir hennar, áhrif og leiðir til að bregðast við.

Þátttakendur fengu verkfæri til að takast á við fordóma í sínu nærumhverfi og kynntust aðferðum gagnræðu (e. counterspeech), sem hjálpa að draga úr áhrifum fordómafullrar umræðu. Um gagnræðu má lesa nánar á vef Samtakanna 78.
Þorbjörg lagði áherslu á að ábyrgð á að bregðast við hatursorðræðu hvíli á okkur öllum. Hún lagði áherslu á að hatursorðræðu eigi ekki að láta ósvarað. Ef við látum hatursorðræðu óáreitta fær hún meira pláss, sem ýtir smám saman undir fordóma, mismunun og ofbeldi.
Fræðslan er hluti af sameiginlegu átaki heildarsamtaka launafólks til að efla starfsfólk stéttarfélaga í baráttunni fyrir jöfnuði og mannréttindum.