Á undanförnum árum hefur Póstmannafélag Íslands (PFÍ) staðið frammi fyrir rekstraráskorunum sem m.a. tengjast fækkun félagsmanna og auknum rekstrarkostnaði. Til að tryggja sterka stöðu félagsins til framtíðar og bætta þjónustu við félagsfólk hóf PFÍ viðræður við Sameyki. Stjórnir beggja félaga hafa nú samþykkt að leggja til sameiningu og verður hún borin undir atkvæði félagsfólks á aðalfundi í mars á næsta ári.
Sameining PFÍ og Sameykis felur í sér fjölmarga kosti fyrir félagsfólk og tryggir að réttindi þeirra haldist ekki aðeins óskert heldur verður þjónustan sterkari til framtíðar.
Sameining hefur engin áhrif á kjarasamning félagsfólks PFÍ þar sem kjarasamningur og réttindi haldast óbreytt.
• Kjör haldast óbreytt
• Félagsaldur flyst óskertur yfir
• Punktastaða og aðrir áunnir réttir haldast óbreyttir
Góð og fjölbreytt þjónusta.
• Með því að sameinast stærra félagi fær félagsfólk aðgang að mun öflugri þjónustu, t.d. auknar stoðir og meiri sérfræðiþekking sem nýtist öllu félagsfólki
Trúnaðarmenn halda stöðu sinni.
• Allir trúnaðarmenn PFÍ flytjast sjálfkrafa yfir og halda áfram að gæta hagsmuna félagsfólks á vinnustöðum Póstsins.
Lífeyris- og eftirlaunamál.
• Þeir sem eru skráðir í eftirlaunadeild PFÍ færast sjálfkrafa yfir í lífeyrisdeild Sameykis.
Fleiri orlofsíbúðir.
• Sameining gefur félagsfólki aðgang að fleiri orlofsíbúðum og húsum víða um land en einnig eru orlofseignir á Spáni og Tenerife.
Sterkari saman.
• Með sameiningu við Sameyki verður starfsemin fjárhagslega stöðugri, þjónustan öflugri og baráttan fyrir kjörum félagsfólks sterkari.
Við hvetjum félagsfólk til að hafa samband við skrifstofu PFÍ ef einhverjar spurningar vakna eða þörf er á frekari upplýsingum. Starfsfólk okkar er reiðubúið að aðstoða og veita skýringar á öllum þáttum sameiningarinnar.

Stjórnir beggja félaga hafa nú samþykkt að leggja til sameiningu og verður hún borin undir atkvæði félagsfólks á aðalfundi í mars á næsta ári.