Aðventufagnaður eftirlaunadeildar PFÍ

Aðventufagnaður eftirlaunadeildar PFÍ var haldinn þriðjudaginn 2. desember. Ragnheiður Björnsdóttir hóf samkomuna með því að lesa jólasögu og skapa notalega stemningu í upphafi dagskrár.

Gestur fagnaðarins var Kolbeinn Þorsteinsson sem las upp úr nýrri bók sinni, Mamma og ég.

Að loknum lestri var dregið í hinu sívinsæla happdrætti þar sem á boðstólum voru glæsilegir vinningar. Það voru þær Edda, Elínbjörg, Fanney og Valdís sem sáu um happdrættið með gleði og glensi.

Í kjölfarið settust gestir niður og gæddu sér á heitu súkkulaði, tertum og smákökum — dásamlegu jólabakkelsi sem skapaði hlýja og notalega stemningu í salnum.

Í lok dagskrár fór Jóhanna Fríður, formaður PFÍ, yfir stöðu félagsins og ræddi um fyrirhugaða sameiningu PFÍ og Sameykis. Þá mætti einnig Gunnsteinn Ómarsson, framkvæmdastjóri Sameykis, og kynnti stuttlega lífeyrissjóðsdeild Sameykis.

Ánægjuleg og hlý samvera einkenndi þessa stund eins og má sjá á myndunum.