Trúnaðarmenn PFÍ – þjónusta um allt land

Trúnaðarmenn Póstmannafélags Íslands eru sjö talsins og starfa fyrir félagsfólk víðs vegar um landið.

Trúnaðarmenn eru tengiliðir milli PFÍ og félagsfólks á vinnustöðum Póstsins. Hlutverk þeirra og verkefni eru meðal annars að standa vörð um kjör og réttindi starfsfólks, vera fulltrúar PFÍ á vinnustað hvað varðar framkvæmd kjarasamnings og réttargæslu félagsfólks, koma upplýsingum frá stéttarfélaginu á framfæri við starfsfólk og vinna að lausn mála sem kunna að koma upp á vinnustað.
Starfsfólk á rétt á að trúnaðarmaður sé viðstaddur ef það er kallað fyrir yfirmann.

Félagsfólk er ávallt velkomið að hafa samband við þessa öflugu trúnaðarmenn, sem búa yfir mikilli reynslu og leggja sig fram um að veita skýra og trausta aðstoð.

Hér er listi yfir trúnaðarmenn PFÍ, kjörtímabilið 2025–2027, raðað eftir svæðum:

Norðurland, Vestfirðir og Vesturland
Guðný María – staðsett á Húsavík
Hjörtur Þór – staðsettur á Akureyri

Austurland, Reykjanes og Suðurland
Elísa – staðsett á Selfossi
Victoría Auður – staðsett í Reykjanesbæ

Höfuðborgarsvæðið
Atli – staðsettur í Póstmiðstöð
Elísabet – staðsett á skrifstofu að Höfðabakka 9d
Sigríður „Didda“ – staðsett á skrifstofu að Höfðabakka 9d