Í nýjasta tölublaði af Tímariti Sameykis er rætt við Jóhönnu Fríði Bjarnadóttur, formann Póstmannafélags Íslands (PFÍ), um fyrirhugaða sameiningu félagsins við Sameyki.
Í viðtalinu fer Jóhanna yfir ástæður þess að sameining er nú til skoðunar, hvaða tækifæri hún telur felast í breiðara og öflugra stéttarfélagi og hvaða þýðingu þetta gæti haft fyrir félagsfólk til framtíðar.
Viðtalið í heild sinni má finna hér á heimasíðu Sameykis.