Aðalfundur Póstmannafélags Íslands verður haldinn fimmtudaginn 26. mars 2026 kl.16:30 á Grand hótel Reykjavík, Sigtúni 28, í fundarsalnum Gallerí á jarðhæð. Þau sem ekki komast á staðinn gefst kostur á að vera með á fjarfundi.
Á fundinum fer fram hefðbundin aðalfundarstörf. Einnig verður kosið um sameiningu við Sameyki.
Kosið verður um sameininguna rafrænt og aðeins þau sem skráð eru á fundinn, hvort sem það er á staðnum eða á fjarfundi, geta tekið þátt.
Félagsfólk er hvatt til að mæta og taka þátt.
Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn, bæði fyrir þau sem mæta á staðinn og þau sem verða með á fjarfundi. Skráningu lýkur miðvikudaginn 25. mars.
Skráning á aðalfund
