Á aðalfundi Póstmannafélags Íslands (PFÍ), sem haldinn var í dag, var kosið um sameiningu félagsins við Sameyki. Tillagan var samþykkt einróma. Á aðalfundi Sameykis, sem einnig fór fram í dag, var sameiningartillagan samþykkt með 93% atkvæða.
Á fundinum tók félagsfólk mikilvæga ákvörðun þegar kosið var um sameiningartillögu PFÍ og Sameykis. Slíkar ákvarðanir marka tímamót í starfi félagsins og leggja grunn að sterkari stöðu þess til framtíðar.
Þessi ákvörðun kemur á merkum tímamótum í sögu félagsins, en Póstmannafélag Íslands var stofnað í Reykjavík á þessum degi árið 1919 og fagnar því í dag 107 ára afmæli sínu.
Stofnun PFÍ árið 1919 átti sér skýrar forsendur í uppgangi verkalýðshreyfingar og félagslífs á Íslandi á þeim tíma, skömmu eftir að landið fékk fullveldi. Stofnfundur félagsins var haldinn í Pósthúsinu í Reykjavík, og bar félagið í fyrstu einfaldlega nafnið Póstmannafélagið. Árið 1932 tók það upp núverandi nafn og voru félagsmenn þá orðnir 73, þar af 7 konur.
PFÍ er eitt elsta starfandi stéttarfélag landsins og hafa alls 28 einstaklingar gegnt formennsku frá stofnun, að núverandi formanni meðtöldum.
Bandalag starfsmanna ríkis og bæja (BSRB) var stofnað 14. febrúar 1942 og var PFÍ eitt af 14 stofnfélögunum. Í dag samanstendur bandalagið af 19 aðildarfélögum.
Saga PFÍ minnir okkur á mikilvægi samstöðu og ábyrgðar í starfsemi félagsins. Með sameiningu við Sameyki stendur PFÍ frammi fyrir nýjum tímamótum sem marka nýtt skeið í 107 ára sögu félagsins – skeið sem byggir á ábyrgð, samstöðu og framtíðarsýn.



