
Sala miða í sumarferðir Lífeyrisdeildar Sameykis hefjast í dag, 13. apríl kl. 10.
Um er að ræða ferðir á Snæfellsnes undir leiðsögn Harðar Gíslasonar. Hægt er að velja á milli 3ja dagsetninga: þriðjudaginn 23. júní, fimmtudaginn 25. júní og þriðjudaginn 30. júní.
Keyrt verður í Borgarnes og út á Snæfellsnes þar sem áhugaverðir staðir verða skoðaðir. Á Narfeyrarstofu í Stykkishólmi verður boðið upp á rjómalagaða sveppasúpu og brauð í hádeginu. Við munum dvelja í Stykkishólmi og skoða fallegt umhverfi þar. Í lok dags verður boðið upp á kvöldverð á Hótel Hamri í Borgarfirði.
Félagsfólk má bjóða með sér einum gesti. Verð er 9.000 kr. á mann með öllu.
Póstmenn þurfa að senda tölvupóst á johannaf@sameyki.is eða hringja í síma 525 8371 til að skrá sig í ferðina.