📍 Trúnaðarmannanámskeið PFÍ

Flottur og áhugasamur hópur trúnaðarmanna kom saman á námskeiði PFÍ mánudaginn 26. maí. Dagskráin var fjölbreytt og hnitmiðuð – með fræðslu, umræðum og verkefnavinnu sem snertu kjarnann í hlutverki trúnaðarmannsins.
🔸 Sigrún Ómarsdóttir, framkvæmdastjóri PFÍ, fór yfir sjóði félagsins, Mínar síður og orlofsvefinn.
🔸 Sigríður Ástmundsdóttir, sem er trúnaðarmaður auk þess að vera stjórnarmaður og gjaldkeri félagsins, miðlaði einnig upplýsingum um einn af sjóðum félagsins.
🔸 Þórkatla Aðalsteinsdóttir, sálfræðingur hjá Líf og Sál, ræddi um fyrstu skrefin í hlutverki trúnaðarmannsins, hindranir og hvernig best er að takast á við nýtt hlutverk.
🔸 Sigurlaug Gröndal, kennari við Félagsmálaskóla alþýðu, fjallaði um mörk og áskoranir í starfi og hvernig bregðast má við ólíkum aðstæðum.
💬 Umræður voru líflegar og þátttakendur sýndu mikinn áhuga – bæði í formlegri dagskrá og í samveru yfir daginn.
Hópurinn hitti jafnframt Sonju Ýr Þorbergsdóttur, formann BSRB, og Magnús Má Guðmundsson, framkvæmdastjóra BSRB.
🌍 Trúnaðarmenn PFÍ sinna stóru og fjölbreyttu hlutverki, fyrir félagsmenn á víð og dreif – ekki aðeins á eigin vinnustað. Starf þeirra er mikilvægt, krefjandi og afar dýrmætt fyrir allt félagsstarfið.