Trúnaðarmenn

Trúnaðarmenn á vinnustöðum eru fyrst og fremst kjörnir til að standa vörð um kjaraleg réttindi starfsmanna. Öllum starfsmönnum ber að taka tillit til þess. Þeir eru ekki verkstjórar á vinnustað og þeim ber ekki að skera úr um ágreining sem kann að verða um fyrirkomulag vinnunnar, svo lengi sem það ekki brýtur gegn réttindum starfsmanna.

Starfsmaður á rétt á að trúnaðarmaður sé viðstaddur ef hann er kallaður fyrir yfirmann. Trúnaðarmaður nýtur réttar samkvæmt lögum og má í engu láta hann gjalda þess í starfi eða á annan hátt að hann hefur valist til þessa trúnaðarstarfs.

Hér á eftir er listi yfir trúnaðarmenn PFÍ raðað eftir svæðum:

Kjörtímabil mars 2025 til mars 2027

Vesturland, Vestfirðir, Norðurland:
Guðný María Waage, Húsavík
Hjörtur Þór Hjartarson, Akureyri


Austurland, Suðurland, Reykjanes:
Elísa Nielsen Eiríksdóttir, Selfoss
Victoría Auður Karlsdóttir, Reykjanesbær

Höfuðborgarsvæðið:
Atli B. Bachmann, Póstmiðstöð
Elísabet Brynjarsdóttir, H9
Sigríður Ástmundsdóttir, H9